Húsin á Heimaey

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. september 2005 kl. 22:30 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. september 2005 kl. 22:30 eftir Frosti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Frá upphafi byggðar í Vestmannaeyjum var gjarnan sá siður að gefa hverju húsi nafn, sem húsbyggjandi valdi of frá æskustöðvum sínum, en á seinni árum hefur þessi siður fallið niður og hvert íbúðarhús fær númer í stað nafns. Þannig að nöfn húsanna munu gleymast ef þessum nöfnum er ekki safnað saman.

Fyrstur manna í Eyjum, sem byrjaði að safna þessum nöfnum, var frú Ingibjörg Jónsdóttir, húsfreyja í Þórðlaugargerði, og tók Þorsteinn Víglundsson við af henni.


Hér má einnig finna nokkur tómthús sem skráð voru í Vestmannaeyjum.


Sveitarfélag Vestmannaeyjar

Fjöldi íbúða samtals 1.642

Einbýli 967

Tvíbýli 340

3-5 íbúða hús 65

6-12 íbúða hús 146

Fleiri en 13 íbúðir í húsi 85

Íb. í öðrum húsum en íbúðarhúsum 39

Úr Ársskýrslu Fasteignamats ríkisins 2003

Götur

Göturnar á Heimaey eru 66 talsins, en einungis er búið við 60 þeirra auk þeirra sem búa í húseignum er bera bæjarnöfn, og svo Hraunbúðum.

Engir íbúar búa við eftirtalin götuheiti niður við sjávarsíðuna: Græðisbraut, Hafnargötu, Hlíðarveg, Skildingaveg, Tangagötu og Ægisgötu.

Tölfræði

Við eftirtaldar götur búa 100 manns og fleiri:

  1. Áshamar, 289 íbúar.
  2. Foldahraun, 258 íbúar.
  3. Illugagata, 209 íbúar.
  4. Hásteinsvegur, 190 íbúar.
  5. Hrauntún, 187 íbúar.
  6. Hólagata, 182 íbúar.
  7. Búhamar, 172 íbúar.
  8. Höfðavegur, 171 íbúar.
  9. Heiðarvegur, 167 íbúar.
  10. Brattagata, 141 íbúar.
  11. Faxastígur, 134 íbúar.
  12. Vestmannabraut, 133 íbúar.
  13. Brimhólabraut, 126 íbúar.
  14. Ásavegur, 109 íbúar.
  15. Dverghamar, 107 íbúar.
  16. Kirkjuvegur, 105 íbúar.

Hús skráð utan gatna