Höskuldur Rafn Kárason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2005 kl. 13:13 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2005 kl. 13:13 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Höskuldur Rafn Kárason var fæddur á Siglufirði 12. maí 1950. Hann á fjögur börn, þau heita Guðrún Sonja, Kári, Ármann og Jónas. Höskuldur er giftur Sigurleif Guðfinnsdóttur og þau eiga saman Ármann og Jónas.

Hann starfar sem vinnueftirlitsmaður ríkisins á Suðurlandi og er formaður Sjálfsbjargar í Vestmannaeyjum.

Hann er meistari í rennismíði, sjúkraliði, vélavörður og hefur mikið verið í því að smíða klukkur og penna. Hann er einnig mikill áhugamaður um ættfræði.