Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 14:35 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 14:35 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Háhá séð innan úr Herjólfsdal.

Háhá, eða Há-há, er klettur sem stendur vestast á því fjalli sem kallað er Háin. „Há“ er þó réttara notað sem heildarheiti yfir allt fjallið sem stendur austan við Herjólfsdal. Há-há er, eins og nafnið bendir til, hæsti punktur fjallsins, en hann stendur um 220m yfir sjávarmál. Þar er fánastöng sem er gjarnan flaggað á við hátíðleg tækifæri, og er jafnframt spotti bundinn milli þeirrar fánastangar og annarrar eins á Blátindi yfir Þjóðhátíð, og skraut hengt þar á milli.

Háin er þverhnípt að vestan, en uppgangur er auðveldur að austan.