Gvendarhús

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 15:58 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 15:58 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Gvendarhús var ein af Ofanleitishjáleigum í byggðinni fyrir ofan hraun. Einn þekktasti ábúandi þar var Jón Jónsson í Gvendarhúsi (Gamli Jón í Gvendarhúsi) sem bjó þar með konu sinni, Sesselju Jónsdóttur, systur Hannesar lóðs. Þegar þau hættu búskap tóku við hjónin Friðjón Magnússon og Ólöf Ketilsdóttir en árið 1936 hófu þau Guðjón Guðmundsson í Gvendarhúsi og Margrét Hróbjartsdóttir búskap þar. Theódór sonur þeirra reisti sér nýtt hús aðeins vestan við gamla bæinn á 6. áratug síðustu aldar. Bæði það hús, svo og gamli bærinn í Gvendarhúsi fóru undir vesturhluta flugbrautarinnar er hún var lengd.

Nú stendur í landi Gvendarhúss, suður af gamla bæjarstæðinu, nýbygging Katrínar Magnúsdóttur og Sigurgeirs Jónssonar og ber sama nafn. Húsið, sem er norskt timburhús, var reist árið 2001.

Í Blik 1959 er ritað um Gvöndarhús.