Gunnlaugur Viðar Guðjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. maí 2022 kl. 10:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. maí 2022 kl. 10:43 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Gunnlaugur Viðar Guðjónsson.

Gunnlaugur Viðar Guðjónsson sjómaður, sendibílstjóri, kaupmaður fæddist 31. desember 1941 í Reykjavík og lést 20. júní 2010 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Guðjón Gíslason frá Suður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, Rang., verkamaður, sjómaður, f. 13. ágúst 1912, d. 25. október 1991, og kona hans Jóna Þorgerður Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1917 á Norðfirði, d. 25. október 1987.

Börn Jónu og Guðjóns í Eyjum:
1. Guðrún Guðjónsdóttir húsfreyja á Foldahrauni 40, f. 10. mars 1938. Maður hennar er Helgi Marinó Sigmarsson sjómaður.
2. Ágúst Guðjónsson sjómaður, f. 16. október 1940, d. 14. nóvember 1992, ókv.
3. Gunnlaugur Viðar Guðjónsson matsveinn, kaupmaður í Reykjavík eftir Gos, f. 31. desember 1941, d. 20. júní 2010. Kona hans var Ágústa Ágústsdóttir húsfreyja.
4. Gísli Guðgeir Guðjónsson matsveinn, f. 12. ágúst 1944, d. 10. janúar 2020. Kona hans er Guðrún Alexandersdóttir.
5. Ófeigur Reynir Guðjónsson verkamaður í Reykjavík, f. 22. október 1947, ókv.
6. Dagbjörg Erna Guðjónsdóttir, f. 4. október 1948, d. 8. apríl 2011. Hún bjó með Reyni Sigurlássyni frá Reynistað, f. 6. janúar 1946, d. 1. mars 1979.
7. Stefán Sævar Guðjónsson matreiðslumeistari, f. 1. desember 1950. Kona hans er Sif Svavarsdóttir.

Gunnlaugur var með foreldrum sínum í æsku, ólst upp í Camp Knox, braggahverfi í vesturbæ Reykjavíkur, en síðar í Akurgerði þar.
Hann stundaði snemma sjómennsku í Reykjavík og í Eyjum. Síðar var hann sendibílstjóri í Reykjavík, vann í íþróttahúsi Fellaskóla. Eftir Gosið 1973 rak fjölskyldan söluturninn ,Allt í einu‘ .
Gunnlaugur Viðar fluttist til Eyja 1965.
Þau Ágústa giftu sig 1967, eignuðust tvö börn og Gunnlaugur gerði Bylgju Eyhlíð, barn Ágústu að kjörbarni sínu. Þau bjuggu á Brekastíg 24 við Gosið 1973. Þau fluttu til Reykjavíkur, bjuggu síðast í Gautavík 17.
Gunnlaugur Viðar lést 2010.

I. Kona Gunnlaugs Viðars, (26. desember 1967), er Ágústa Ágústsdóttir húsfreyja, f. 23. september 1945.
Börn þeirra:
1. Ágúst Gunnlaugsson lýsingahönnuður, f. 23. ágúst 1969. Kona hans Hildur Árnadóttir.
2. Sævar Örn Gunnlaugsson bifreiðastjóri hjá Árvakri, f. 25. október 1976. Kona hans Sigurbjörg Jakobsdóttir.
Dóttir Ágústu og kjördóttir Gunnlaugs Viðars er
3. Bylgja Eyhlíð Gunnlaugsdóttir húsfreyja, starfsmaður í eldhúsi, f. 10. janúar 1966. Barnsfaðir hennar Geir Hlöðver Ericsson. Maður hennar Jósep Svan Jóhannesson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ágústa.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 29. júní 2010. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.