Guðrún Steinsdóttir (Ingólfshvoli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. ágúst 2022 kl. 12:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. ágúst 2022 kl. 12:01 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Anna Guðrún Steinsdóttir. '''Anna ''Guðrún'' Steinsdóttir''' frá Ingólfshvoli við Landagötu 3A, húsfreyja fæddist 4. janúar 1905 í Reykjavík og lést 3. desember 1933.<br> Foreldrar hennar voru Steinn Sigurðsson klæðskeri á Ingólfshvoli, síðar í Reykjavík, f. 6. apríl 1873 í Vestra-Fróðholti í Rang., d. 9. nóvember 1947, og...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Anna Guðrún Steinsdóttir.

Anna Guðrún Steinsdóttir frá Ingólfshvoli við Landagötu 3A, húsfreyja fæddist 4. janúar 1905 í Reykjavík og lést 3. desember 1933.
Foreldrar hennar voru Steinn Sigurðsson klæðskeri á Ingólfshvoli, síðar í Reykjavík, f. 6. apríl 1873 í Vestra-Fróðholti í Rang., d. 9. nóvember 1947, og kona hans Kristín Hólmfríður Friðriksdóttir húsfreyja, kennari, f. 4. febrúar 1878 í Breiðagerði í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði, d. 4. júní 1968.

Börn Kristínar Hólmfríðar og Steins:
1. Anna Guðrún Steinsdóttir, f. 4. janúar 1905 í Reykjavík, d. 3. desember 1933.
2. Margrét Steinsdóttir , f. 31. júlí 1906 á Akureyri, d. 27. september 1920.
3. Friðrik Steinsson, f. 11. nóvember 1907 á Akureyri, d. 25. júlí 1975.
4. Ásmundur Benedikt Steinsson, f. 17. desember 1909 á Skjaldbreið, d. 4. júlí 1981.
5. Anna Sigríður Steinsdóttir, f. 4. janúar 1911 á Skjaldbreið, d. 28. maí 1970.
6. Jóhannes Steinsson, f. 2. maí 1913 á Ingólfshvoli, d. 11. júní 1913.
7. Jóhannes Kristinn Steinsson bóndi á Stóru-Heiði í Mýrdal, síðar verslunarmaður í Garði, f. 19. desember 1914 á Ingólfshvoli, d. 24. desember 1989.
8. Sigurður Steinsson járnsmiður, myndhöggvari, f. 23. janúar 1916, d. 21. mars 2002.
9. Auður Steinunn Kristín Steinsdóttir, f. 11. mars 1917 á Ingólfshvoli, d. 15. febrúar 1984.
10. Ingólfur Páll Steinsson framkvæmdastjóri, f. 1. júní 1924 á Ingólfshvoli.
11. Barn, sem dó í fæðingu.

Anna Guðrún var með foreldrum sínum í æsku, flutti með þeim til Eyja 1908, bjó hjá þeim á Skjaldbreið og Ingólfshvoli.
Þau Eiríkur giftu sig 1924, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu á Fögrubrekku við giftingu, á Búðarfelli við Skólaveg 8 1930.
Anna Guðrún lést 1933.

I. Maður Guðrúnar, (17. október 1924), var Eiríkur Jónsson vélstjóri, formaður, síðar forstöðumaður Verkamannaskýlisins á Básaskersbryggju, f. 17. desember 1894, d. 30. júní 1970.
Barn þeirra:
1. Friðrik Eiríksson rennismiður í Reykjavík, f. 19. apríl 1925, d. 29. maí 1962.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.