Guðrún Hlín Adolfsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Hlín Adolfsdóttir húsfreyja fæddist 24. mars 1952 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Adolf Magnússon frá Sjónarhól, sjómaður, vélstjóri, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 12. febrúar 1922 á Sævarbrún, d. 29. nóvember 2005, og kona hans Þorgerður Sigríður Jónsdóttir frá Ísafirði, húsfreyja, f. 19. júlí 1922, d. 22. mars 2003.

Börn Þorgerðar og Adolfs:
2. Sólveig Adolfsdóttir, f. 1. október 1946 á Hlíðarenda á Ísafirði. Maður hennar Þór Ísfeld Vilhjálmsson.
3. Kristín Margrét Adolfsdóttir, f. 17. nóvember 1947 í Bjarma. Maður hennar Hafsteinn Sæmundsson.
4. Kristján Ágúst Adolfsson, f. 14. apríl 1949 í Bjarma. Kona hans Guðríður Óskarsdóttir.
5. Jóna Ágústa Adolfsdóttir, f. 16. júní 1950 í Bjarma. Maður hennar Páll Jónsson.
6. Guðrún Hlín Adolfsdóttir, f. 24. mars 1952 í Bjarma. Maður hennar Ragnar Jónsson.
7. Guðmundur Adolf Adolfsson, f. 13. október 1955 í Bjarma. Kona hans Valdís Jónsdóttir.
8. Soffía Svava Adolfsdóttir, f. 5. janúar 1959 að Vestmannabraut 76. Maður hennar Þórður K. Karlsson.
Barn Adolfs áður:
9. Hafdís Adolfsdóttir skurðstofuhjúkrunarfræðingur, síðar í Noregi, f. 25. apríl 1946 í Reykjavík. Maður hennar Kristján Eyfjörð Hilmarsson. Barn Þorgerðar Sigríðar áður:
10. Þorgerður Arnórsdóttir, f. 25. október 1943. Maður hennar var Grétar Nökkvi Eiríksson verslunarmaður í Reykjavík, f. 4. apríl 1940, d. 13. ágúst 2003.

Guðrún var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Ragnar giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í New York vegna starfa hans 1968-1974, en búa nú við Birkigrund í Kópavogi.

I. Maður Guðrúnar er Ragnar Jónsson frá Sólbergi við Brekastíg 3, flugvirki, f. 7. nóvember 1947.
Börn þeirra:
1. Jón Ragnar Ragnarsson rafvirki, lagermaður hjá Myllunni, f. 27. júlí 1971. Fyrrum sambúðarkona Thioauh Pham.
2. Örvar Ragnarsson, f. 21. júní 1976 vinnuvélastjóri á Selfossi.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.