Guðrún Þórdís Björgvinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Guðrún Þórdís Björgvinsdóttir.

Guðrún Þórdís Björgvinsdóttir frá Vallartúni við Austurveg 33, húsfreyja fæddist þar 16. febrúar 1949 og lést 14. október 2004.
Foreldrar hennar voru Björgvin Guðmundur Þórðarson sjómaður, vélstjóri, kaupmaður, f. 11. maí 1924 á Fáskrúðsfirði, d. 26. maí 2001, og kona hans Ásta Guðfinna Finnbogadóttir frá Vallartúni, húsfreyja, f. 21. febrúar 1927, d. 11. janúar 2020.

Börn Ástu og Björgvins
1. Guðrún Þórdís Björgvinsdóttir, f. 16. febrúar 1949, d. 14. október 2004. Maður hennar Gísli Tómas Ívarsson.
2. Gunnar Jónas Björgvinsson, f. 15. september 1950, d. 5. nóvember 1968, fórst með Þráni NK 70.
3. Lilja Björgvinsdóttir sjúkraliði, f. 27. maí 1967. Maður hennar Þórhallur Óskarsson.
4. Gunnar Björgvinsson slökkviliðsmaður, starfsmaður Rauða krossins, f. 9. febrúar 1969. Fyrrum kona hans Margrét Gunnarsdóttir. Kona hans Birna Blöndal.

Guðrún Þórdís var með foreldrum sínum í æsku, í Vallartúni og við Herjólfsgötu 6.
Þau Gísli Tómas giftu sig 1972, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Heiðarvegi 49, síðar í Rvk.

I. Maður Guðrúnar Þórdísar, (1972), er Gísli Tómas Ívarsson, f. 3. apríl 1949.
Börn þeirra:
1. Ásta Guðrún Tómasdóttir húsfreyja, f. 15. nóvember 1970, d. 4. mars 2006. Barnsfaðir hennar Arnar Reynisson. Sambúðarmaður hennar Gunnar Þór Jónsson í Rvk.
2. Elva Björk Gísladóttir, f. 25. júní 1973. Sambúðarmaður hennar Einar Helgi Jónsson.
3. Helena Sif Gísladóttir, f. 14. júlí 1976. Sambúðarmaður hennar Jón Ragnar Magnússon.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.