Guðríður Guðfinna Jónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. janúar 2021 kl. 13:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. janúar 2021 kl. 13:12 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðríður Guðfinna Jónsdóttir húsfreyja á Fjólugötu 7 fæddist 25. febrúar 1931 í Vík í Mýrdal.
Foreldrar hennar voru Jón Guðmundsson verkamaður, f. 9. apríl 1904 í Kerlingardal í Mýrdal, drukknaði í lendingu í Vík 6. mars 1941, og kona hans Þórhildur María Hálfdanardóttir húsfreyja, f. 13. júní 1907 í Hnífsdal, d. 29. nóvember 1954.

Guðríður var með foreldrum sínum til 1941, var send í fóstur að Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri og dvaldi þar 1941-1952.
Hún eignaðist Jón Ragnar 1948. Hann ólst upp á Þykkvabæjarklausti.
Guðríður fluttist til Eyja 1952, eignaðist Kolbrúnu í júlí.
Þau Engilbert giftu sig í desember 1953 og hófu búskap sinn í kjallaranum á Seljalandi, síðan í Hljómskálanum (Hvítingavegi 10). Þar fæddist Þór 1954.
Þau dvöldu á Brekastíg 23 hjá Sigurði föður Engilberts meðan á byggingu húss þeirra á Fjólugötu stóð. Þau fluttu þangað 1964 og hafa búið þar síðan.

I. Barnsfaðir Guðríðar var Víkingur Sævar Sigurðsson, f. 5. maí 1925, d. 25. febrúar 1983.
Barn þeirra er
1. Jón Ragnar Sævarsson sjómaður, vélstjóri, vélvirki, f. 27. júlí 1948 á Þykkvabæjarklaustri.

II. Maður Guðríðar, (31. júlí 1953), er Engilbert Ottó Sigurðsson sjómaður, bifreiðastjóri, f. 14. maí 1931.
Börn þeirra eru:
1. Kolbrún Engilbertsdóttir sjúkraliði í Reykjavík, f. 16. júlí 1952 á Sjúkrahúsinu í Eyjum.
2. Þór Engilbertsson húsasmíðameistari og verktaki, eigandi byggingafyrirtækisins Tvö-Þ í Eyjum, f. 16. apríl 1954 í Hljómskálanum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Guðríður Guðfinna Jónsdóttir.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.