Guðni Grímsson (formaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júní 2012 kl. 15:16 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júní 2012 kl. 15:16 eftir Daniel (spjall | framlög) (Guðni Grímsson (Herjólfsgötu) færð á Guðni Grímsson (Helgafellsbraut))
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Guðni Grímsson


Guðni Grímsson

Guðni Grímsson fæddist 15. janúar 1904 og lést 9. maí 1996. Foreldrar hans voru Grímur Bjarnason, sjómaður á Stokkseyri, og Helga Þorsteinsdóttir. Þau bjuggu allan sinn búskap á Stokkseyri.

Guðni var kvæntur Lovísu Sigurðardóttur. Börn þeirra voru Kristín Inga f. 1928 d.1967 og Sigurður f.1931.
Þau bjuggu á Herjólfsgötu 14.

Hann var skipstjóri og útgerðarmaður með bátinn Maggý. Hann var skipstjóri frá 1928 til 1960 og hætti hann sjómennsku árið 1964. Frá því vann í landi við uppsetningu á veiðarfærum.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðna:

Guðna telja Gríms ég má
græðir stundar téður,
marinn þegar mylur sá,
Maggý tíðum hleður.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Grímsson ég Guðna ríma
greindan formanninn reyndan.
Maggý er verjans vagga,
víðir þá eikju hýðir.
Fisk dregur mest án miska,
marinn þó dekkið kari
hríðar í hreggi stríðu,
hræðist sízt skatinn græði

Myndir


Heimildir

  • Guðmundur Jakobsson. Skipstjóra og stýrimannatal. Reykjavík: Ægisútgáfan, 1979.
  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.