Guðmundur Pétursson (Elínarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. maí 2013 kl. 12:23 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. maí 2013 kl. 12:23 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðmundur Pétursson''' sjómaður frá Elínarhúsi fæddist1836 í Presthúsum í Mýrdal, var á lífi 1890, d. líklega 1898.<br> Foreldrar hans voru [[Pétur Jónsson (Elín...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Pétursson sjómaður frá Elínarhúsi fæddist1836 í Presthúsum í Mýrdal, var á lífi 1890, d. líklega 1898.
Foreldrar hans voru Pétur Jónsson sjómaður í Elínarhúsi, f. 1. október 1800, d. 15. maí 1859, og kona hans Guðrún Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 1. mars 1806 í Álftagróf í Mýrdal, d. 28. febrúar 1880.

Guðmundur var með foreldrum sínum 1845 og 1850, vinnumaður á Gjábakka 1855, 24 ára ókvæntur húsbóndi með bústýrunni Rannveigu Ögmundsdóttur í Smiðjunni 1860, kvæntur í Elínarhúsi 1870, sagður skilinn vinnumaður í Frydendal 1890.
Guðmundur var hermaður í Herfylkingunni.

I. Kona Guðmundar var Guðlaug Jónsdóttir húsfreyja.
Börn þeirra voru tveir synir, sem dóu ungir.

II. Barnsmóðir Guðmundar var Margrét Arnbjörnsdóttir, síðar húsfreyja í Nýjahúsi, f. 17. júní 1825 í Eyvindarhólasókn, d. 19. október 1911.
Barn þeirra var:
Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Framnesi, f. 31. ágúst 1858, á lífi 1920.

III. Barnsmóðir Guðmundar var Elín Steinmóðsdóttir frá Steinmóðshúsi, f. 1836.
Barnið var:
Steinmóður Guðmundsson, f. 15. maí 1860, var kallaður „Steinmóður sterki“. Hann var sjómaður á Kirkjubæ 1901, fór síðar til Austfjarða og var vinnumaður á Króki í Fáskrúðsfirði 1910.


Heimildir