Guðmundur Jóelsson (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 11:08 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 11:08 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðmundur, til vinstri, ásamt Guðlaugi Stefánssyni.

Guðmundur Eyjólfur Jóelsson frá Háagarði fæddist 5. janúar 1907 og lést 14. september 1965. Hann var sonur Jóels Eyjólfssonar. Bræður Guðmundar voru Þorgeir og Edvin, báðir formenn.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðmund:

Annan skal ygginn hranna
ennþá við Jóel kenna.
Guðmundur strauminn stundar
stinnur sá gyrnung finnur.
Þristinum þjónar lista
þundur, sem miðin grundar.
Skak iðkar sjós í svaka
sannlega beimur hranna.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.