Guðmundur Eiríksson (Smiðjunni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 20:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 20:31 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Eiríksson tómthúsmaður í Smiðjunni, síðar í Fjósi, fæddist 1813 í Skálmarbæ í Álftveri, V-Skaft., og lést 11. júní 1867.
Uppruni hans er ókunnur.
Hann var niðursetningur á Svartanúpi í Skaftártungu 1816-1817 eða lengur, léttadrengur á Mýrum þar 1830-1833/4.
Guðmundur var vinnumaður á Vilborgarstöðum 1845 og þar var Kristín Björnsdóttir þjónustustúlka.
Þau bjuggu í tómthúsinu Smiðjunni 1850 og 1855.
Kristín lést 1860 og á því ári er Guðmundur kominn í tómthúsið Fjós og er þar með tvö börn þeirra Kristínar, Sigurbjörgu 12 ára og Guðlaugu yngri 6 ára.
Hann finnst ekki 1870.

I. Kona Guðmundar var Kristín Björnsdóttir húsfreyja í Smiðjunni f. 8. júní 1825 í Eyjum, d. 7. febrúar 1860.
Börn þeirra hér:
1. Guðrún Guðmundsdóttir, f. 28. júlí 1846 á Vilborgarstöðum, d. 2. ágúst úr ginklofa.
2. Guðlaug Guðmundsdóttir, f. 8. október 1847. Hún var 4. barnið, sem fæddist á Fæðingarstofnuninni. Hún dó 15. ágúst 1853 „af sáraveiki“.
3. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, f. 23. júní 1849, d. 15. mars 1925.
4. Guðmundur Guðmundsson, f. 24. október 1850, d. 2. nóvember 1850 „af Barnaveikin“.
5. Guðmundur Guðmundsson, f. 21. september 1852, d. 28. september „af Barnaveikin“.
6. Þorkell Guðmundsson, f. 16. desember 1853, d. 7. janúar 1854 úr ginklofa.
7. Guðlaug Guðmundsdóttir, f. 27. maí 1855, d. 20. nóvember 1931. Hún var húsfreyja í Staðarbæ á Kirkjubæ 1910.
8. Jón Guðmundsson, f. 1. apríl 1859, hrapaði úr Flugum 3. júní 1873.

II. Barnsmóðir Guðmundar var Halldóra Jónsdóttir frá Steinsstöðum, þá ekkja, f. 10. október 1819, d. 24. mars 1883.
Barnið var
8. Andvana fætt stúlkubarn 25. október 1863.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.