Guðlaugur Hansson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2012 kl. 12:29 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2012 kl. 12:29 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðlaugur

Guðlaugur Hansson frá Fögruvöllum fæddist 17. apríl 1874 og lést 16. febrúar 1956. Guðlaugur var uppeldisbróðir ömmu Ása í Bæ og bjó í Litlabæ.

Guðlaugur var bæjarfulltrúi og sat 224 fundi á árunum 1923–1944. Hann bauð sig fram í fyrstu bæjarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum árið 1919 fyrir A-lista en komst ekki inn.

Guðlaugur var virkur í starfi Leikfélags Vestmannaeyja.

Myndir