Guðlaugur Friðþórsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 14:28 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 14:28 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaugur Friðþórsson er fæddur 24. september 1961. Árið 1984 vann hann það afrek að synda 6 km úr sökkvandi skipi. Það var þann 11. mars þegar Hellisey VE-503 sökk austur af Heimaey. Fjórir skipsfélagar hans létust, en Guðlaugur náði sér fljótt eftir þrekvirkið.

Guðlaugur útskrifaðist frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum og hefur unnið hjá Ísfélaginu í fjölda ára. Guðlaugur bauð sig fram á Vestmannaeyjalistanum fyrir sveitarstjórnarkosningar árið 2006.