Guðlaug Sigurðardóttir (Skógum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. maí 2021 kl. 16:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. maí 2021 kl. 16:25 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Guðlaug Sigurðardóttir.

Guðlaug Sigurðardóttir frá Rauðafelli u. Eyjafjöllum, húsfreyja í Skógum við Bessastíg 8 fæddist 24. mars 1888 og lést 22. mars 1983.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sveinsson bóndi, f. 10. ágúst 1851, d. 24. júní 1920, og kona hans Jakobína Steinvör Skæringsdóttir húsfreyja, f. 8. ágúst 1858, d. 8. febrúar 1917.

Börn Jakobínu og Sigurðar:
1. Árni Sigurðsson, f. 1. mars 1880, drukknaði 16. maí 1901 á leið til Eyja.
2. Sveinbjörg Sigríður Sigurðardóttir, f. 31. október 1884, drukknaði 16. maí 1901 á leið til Eyja.
3. Skæringur Sigurðsson bóndi á Rauðafelli, smiður, síðar í Eyjum, f. 14. mars 1886, d. 27. febrúar 1973.
4. Guðlaug Sigurðardóttir húsfreyja, f. 24. mars 1888, d. 22. mars 1983.
5. Jóhann Björn Sigurðsson útgerðarmaður, f. 8. október 1889, d. 17. september 1972.
6. Sigurður Sigurðsson, f. 30. júní 1891, d. 9. maí 1960.
7. Sigurlína Sigurðardóttir vinnukona, verkakona, öryrki, f. 4. desember 1892, d. 8. október 1960.
8. Ragnhildur Sigurðardóttir, f. 7. desember 1895, d. 6. maí 1983.
9. Elín Sigurðardóttir húsfreyja, f. 11. maí 1899, d. 7. maí 1966.
10. Árni Sveinbjörn Kjartan Sigurðsson netagerðarmaður, f. 22. október 1903, d. 13. janúar 1997.

Guðlaug var með foreldrum sínum á Rauðafelli í æsku, var með þeim 1910.
Hún flutti frá Rauðafelli til Eyja 1912, bjó með Kristmundi á Jaðri við fæðingu Jakobínu 1918, í Háaskála við Brekastíg 11b 1920 í Skógum við Bessastíg 8 1921 og síðan.
Þau Kristmundur giftu sig, eignuðust eitt barn.
Kristmundur lést 1968. Guðlaug bjó með Jakobínu dóttur sinni í Skógum til Goss 1973, en flutti þá til Reykjavíkur.
Hún lést 1983.

I. Maður Guðlaugar var Kristmundur Jónsson bifreiðastjóri, f. 11. september 1889, d. 8. ágúst 1968.
Barn þeirra:
1. Jakobína Kristmundsdóttir hárgreiðslumeistari, f. 19. október 1918, d. 18. desember 2008.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.