Guðlaug Árnadóttir (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. apríl 2015 kl. 12:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. apríl 2015 kl. 12:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðlaug Árnadóttir''' vinnukona fæddist 14. janúar 1824 á Fagurhól í A-Landeyjum og lést 12. nóvember 1893.<br> Foreldrar hennar voru [[Árni Hafliðason (Ömpuhjalli)|Á...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaug Árnadóttir vinnukona fæddist 14. janúar 1824 á Fagurhól í A-Landeyjum og lést 12. nóvember 1893.
Foreldrar hennar voru Árni Hafliðason, þá vinnumaður, síðar sjómaður í Ömpuhjalli, skírður 5. ágúst 1795, d. 26. júlí 1847, og kona hans Guðný Erasmusdóttir, þá vinnukona á Fagurhól, síðar húsfreyja, f. 6. september 1794, d. 14. júní 1888 í Vesturheimi.

Guðlaug var 10 ára tökubarn í Fagurhól í A-Landeyjum 1835 og við fermingu 1837, 16 ára vinnukona í Litlu-Hildisey þar 1840.
Hún var komin til Eyja 1845 og var þá vinnukona í Draumbæ, í Sorgenfri 1846-1847.
Guðlaug fór til lands 1848, kom aftur 1854 og nú að Löndum þar sem hún var vinnukona næstu árin hjá Helgu systur sinni. Þar var hún til 1873.
Hún var niðursetningur í Fagurlyst 1876, í Svaðkoti 1877.
Guðlaug var vinnukona í Frydendal 1878, í París 1880 og 1881.
Hún var sveitarómagi í Norðurgarði 1890 og lést 1893 í Draumbæ, niðursetningur.
Guðlaug var ógift og barnlaus.


Heimildir