Guðjón Ingimundarson (Draumbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. febrúar 2022 kl. 20:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. febrúar 2022 kl. 20:53 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Ingimundarson frá Draumbæ fæddist 30. júní 1867 og lést 10. desember 1948.
Foreldrar Guðjóns voru Ingimundur bóndi Sigurðsson, sýslunefndarmaður og Katrín Þorleifsdóttir, hjón í Draumbæ í Eyjum.
Guðjón Ingimundarson fór til Ameríku 1892, Þorsteinn smiður, bróðir hans fór 1900, og Sigurður Ingimundarson 1902.


Heimildir

  • Þorsteinn Víglundsson. Saga barnafræðslunnar í Vestmannaeyjum. Blik. 23. árg 1962.
  • Júníus H. Kristinsson. Vesturfaraskrá 1870-1914.

Frekari umfjöllun

Guðjón Ingimundarson frá Draumbæ fæddist 30. júní 1867 og lést 10. desember 1948.
Foreldrar hans voru Ingimundur Sigurðsson bóndi, f. 12. september 1835, d. 12. mars 1894, og kona hans Katrín Þorleifsdóttir húsfreyja, f. 1838, d. 13. febrúar 1901.

Katrín móðir Guðjóns var systir Önnu móður Kristólínu Bergsteinsdóttur húsfreyju á Hjalla, konu Sveins Pálssonar Scheving og Guðrúnar Bergsteinsdóttur húsfreyju á Steinsstöðum, konu Árna Sigurðssonar.

Guðjón var með foreldrum sínum og vann þeim, uns hann fluttist til Vesturheims 1892. Hann var trésmíðameistari í Selkirk og síðar í Winnipeg.
Hann tók upp eftirnafnið Ingimundson.

I. Barnsmóðir Guðjóns var Guðrún Sigurðardóttir frá Brekkuhúsi, þá vinnukona í Draumbæ, f. 23. janúar 1866, d. 6. apríl 1937.
Barn þeirra var
1. Katrín Guðjónsdóttir, f. 15. ágúst 1887, d. 1. nóvember 1907. Hún fluttist til Vesturheims 1902 frá Dal.

II. Kona Guðjóns var Guðbjörg Bernharðsdóttir Ingimundson, húsfreyja í Selkirk og í Winnipeg, f. 7. september 1867, d. 25. júní 1944. Foreldrar hennar voru Bernharð Vigfússon bóndi á Fljótshólum í Flóa, f. 16. ágúst 1832 í Rútsstaðahjáleigu, d. 17. desember 1918 í Hlíð í Garðahreppi, Gull., og kona hans Róbjörg Oddsdóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1839 í Flóa, d. 14. mars 1889.
Börn þeirra hér:
2. Emma Guðjónsdóttir Briem, húsfreyja í Riverton í Manitoba, f. 9. september 1892. Maður hennar Sigtryggur Hafsteinn Jóhannsson Briem, bóndi og vegavinnustjóri í Riverton.
3. Ingibjörg Guðjónsdóttir Ingimundson, f. um 1895 í Winnipeg.
4. Kristmundur Guðjónsson Ingimundson, f. um 1897 í Winnipeg.
5. Jónína Guðjónsdóttir Ingimundson, f. um 1900 í Winnipeg.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.