Guðjón Björnsson (Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. febrúar 2014 kl. 11:15 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. febrúar 2014 kl. 11:15 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|250px|Guðjón Björnsson. '''Guðjón Björnsson''' frá Gerði fæddist 10. maí 1908 og lést 28. nóvember 1999. Foreldrar...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Guðjón Björnsson.

Guðjón Björnsson frá Gerði fæddist 10. maí 1908 og lést 28. nóvember 1999. Foreldrar hans voru Jónína Jónsdóttir og Björn Erlendsson í Gerði. Kona Guðjóns var Þórey Jóhannsdóttir ættuð frá Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð. Þau bjuggu lengi í húsinu Vallartúni og eignuðust sex börn: Valbjörn, Björgu, Jóhann, Jón Inga, Guðríði, látin, og andvana barn.

Gaui í Gerði, eins og hann var jafnan kallaður, stundaði sjómennsku í tugi ára, en hann var meira og minna á sjónum fram yfir nírætt.

Guðjóns er getið í bjargveiðimannatali Árna Árnasonar, en án sérstakrar umsagnar.
Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Guðjón Björnsson (Gerði)


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Myndir