Guðjón Ármann Eyjólfsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. júlí 2006 kl. 11:20 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. júlí 2006 kl. 11:20 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Ármann Eyjólfsson er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Hann var sonur Guðrúnar Brandsdóttur og Eyjólfs GíslasonarBessastöðum í Vestmannaeyjum. Eyjólfur var um áraraðir einn fremsti formaður Eyjanna og aflamaður mikill og Guðrún var listfeng hannyrðakona.

Guðjón Ármann lauk barnaskólaprófi í Vestmannaeyjum og lauk prófi úr Gagnfræðaskólanum árið 1951 með góða einkunn. Hann hóf þá nám í Menntaskólanum í Reykjavík og lauk þaðan stúdentsprófi vorið 1955 úr máladeild. Ári síðar lauk hann svo stúdentaprófi úr stærðfræðideild sem hann leit á sem undirbúning fyrir frekara nám.

Guðjón Ármann fór erlendis í nám í sjómannafræðum sem hann lauk seint á árinu 1960. Að loknu námi hélt Guðjón Ármann heim til Íslands og starfaði hann fyrir Landhelgisgæsluna.


Heimildir

  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1961.