Guðbjörg Árnadóttir (Múla)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. desember 2017 kl. 18:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. desember 2017 kl. 18:33 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Vilhjálmur og Guðbjörg með börnum sínum. Sigurður Ingi situr á milli hjónanna.

Guðbjörg Árnadóttir húsfreyja á Múla fæddist 27. september 1869 á Fossi í Mýrdal og lést 10. júlí 1929.
Foreldrar hennar voru Árni Jónsson bóndi, f. 4. september 1831 á Norður-Fossi í Mýrdal, d. 14. ágúst 1913 í Eyjum, og kona hans Guðlaug Einarsdóttir húsfreyja, f. 4. nóvember 1832 á Hunkubökkum á Síðu, d. 28. febrúar 1894 á Norður-Fossi.

Börn Árna og Guðlaugar voru:
1. Einar Árnason, f. 1859, d. 1859.
2. Guðbjörg Árnadóttir, f. 1860, d. 1860.
3. Jón Árnason bóndi í Kerlingardal og víðar, f. 18. febrúar 1862, d. 2. september 1926.
4. Einar Árnason, f. 1863, d. 1863.
5. Þórarinn Árnason bóndi, bæjarfulltrúi á Eystri Oddsstöðum, f. 13. júní 1865, d. 22. febrúar 1926.
6. Oddný Árnadóttir húsfreyja í Point Roberts í Washington-ríki í Bandaríkjunum, f. 5. maí 1867, d. 21. desember 1942.
7. Guðbjörg Árnadóttir húsfreyja á Múla, f. 27. september 1869, d. 10. júlí 1929.
8. Einar Árnason, f. 1871, d. 1871.
9. Þuríður Ánadóttir, f. 1873, d. 1873.
10. Árnlaug Árnadóttir, f. 1878, d. 1883.

Guðbjörg var með foreldrum sínum á Stóru-Heiði í Mýrdal til 1871, á Norður-Fossi 1871-1897. Hún var vinnukona að Botnum í Meðallandi 1899 til 1901. Þar eignaðist hún Ólaf með Vilhjálmi 1900.
Hún fluttist til Eyja 1901 og varð þá vinnukona á Löndum. Þau Vilhjálmur giftu sig 1902, voru á Oddsstöðum við fæðingu Þorgerðar 1903, voru komin að Múla við fæðingu Kjartans 1906. Þar bjuggu þau við fæðingu Guðlaugar 1907 og síðan.
Árni faðir Guðbjargar kom að Múla 1903 og var hjá henni til æviloka 1913.

Maður Guðbjargar, (1902), var Vilhjálmur Ólafsson sjómaður, útgerðarmaður á Múla, f. 28. ágúst 1872, d. 3. júlí 1951.
Börn þeirra voru:
1. Ólafur Vilhjálmsson skipstjóri, sjómaður, f. 12. september 1900, d. 24. febrúar 1972.
2. Þorgerður Vilhjálmsdóttir húsfreyja á Múla, f. 12. ágúst 1903, d. 29. september 1990.
3. Kjartan Leifur Vilhjálmsson skipstjóri, sjómaður, f. 20. mars 1906, drukknaði 30. mars 1932.
4. Guðlaug Vilhjálmsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 27. maí 1907, d. 22. júlí 1974.
Fóstursonur þeirra var
5. Sigurður Ingi Jónsson prentari í Reykjavík, f. 19. júní 1917, d. 30. október 1997.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.