Guðrún Guðmundsdóttir (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 14:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. janúar 2016 kl. 14:08 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja á Miðhúsum fæddist 21. ágúst 1835 á Heylæk í Fljótshlíð og lést í Vesturheimi.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson vinnumaður á Teigi og Kristín Pétursdóttir vinnukona á Heylæk, f. 1800 í Stóra-Dalssókn u. Eyjafjöllum, d. 12. ágúst 1864.

Guðrún var ekki með móður sinni á Heylæk 1835, en með henni á Syðri-Hól u. Eyjafjöllum 1840 og á Neðri-Þverá í Fljótshlíð 1845.
Hún var vinnukona ásamt móður sinni á Syðri-Hól 1850 og í Varmahlíð þar 1855 og enn 1860.
Guðrún fluttist frá Varmahlíð að Miðhúsum 1863, var þar vinnukona við giftingu sína 1864. Þau Vigfús voru nýgift hjón þar hjá Sesselju Helgadóttur ekkju í lok ársins með barnið Guðlaug á 1. ári.
Þau misstu 8 daga gamalt barn úr ginklofa 1870.
Þau Vigfús voru orðin húsráðendur á öðru býlinu á Miðhúsum 1865 og bjuggu þar uns Vigfús fluttist til Vesturheims 1888. Hún var með Guðlaugi og Einari sonum sínum í Nýja-Kastala í lok árs 1888. Hún fluttist til Utah 1889.

Maður Guðrúnar, (7. október 1864), var Vigfús Einarsson bóndi, f. 17. júlí 1838 og lést Vestanhafs.
Börn þeirra hér:
1. Guðlaugur Vigfússon sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, síðar í Grafarholti, f. 18. ágúst 1864, d. 4. maí 1942.
2. Sesselja Kristín Vigfúsdóttir, f. 1867. Hún fór til Utah 1891 frá Mandal.
3. Einar Vigfússon, f. 23. febrúar 1870, d. 2. mars 1870 úr ginklofa.
4. Einar Vigfússon, f. 1. apríl 1872. Hann var vinnumaður í Garðinum 1890, fór til Utah 1892.
5. Árni Vigfússon, f. 11. júlí 1875. Hann fór til Utah 1887 frá Miðhúsum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.