Grímur Gíslason (Haukabergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2006 kl. 14:09 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2006 kl. 14:09 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Grímur Gíslason, Felli, fæddist á Stokkseyri 20. apríl 1898. Grímur byrjaði ungur sjómennsku. Formennsku byrjar hann á Kristbjörgu II árið 1926 sem þá var nýr bátur í eigu Gríms og tengdaföður hans, Magnúsar á Felli. Var Grímur formaður á Kristbjörgu II til ársins 1952. Þá hætti Grímur sjómennsku.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Grím:

Grími löngum gefst að ná
góðum mörgum hlutnum.
Kannar ennþá krappan sjá
Kristbjargar í skutnum.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.