Gissur Pétursson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2005 kl. 09:04 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2005 kl. 09:04 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Gissur Pétursson var prestur að Ofanleiti frá 1689 til 1713.

Gissur var fæddur að Ofanleiti í Vestmannaeyjum árið 1651. Foreldrar hans voru séra Pétur GissurarsonOfanleiti og Vilborg Klausdóttir. Hann var við nám í Skálholtsskóla frá 1669 til 1674 og vígðist svo aðstoðarprestur til föður síns, séra Pétur Gissurarsonar. Gissur fékk veitingu fyrir Ofanleiti árið 1689 og hélt henni til æviloka, en hann andaðist 13. apríl 1713.

Séra Gissur var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Sigríður Eyjólfsdóttir og voru þau barnlaus. Síðari kona hans var Helga Þórðardóttir og áttu þau saman fjögur börn, þrjá dætur og einn son.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.