Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. september 2009 kl. 18:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. september 2009 kl. 18:24 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

|

Gagnfræðaskólinn.

Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum var stofnaður 19. maí 1930 samkvæmt lögum um gagnfræðaskóla í kaupstöðum.
Hinn 24. apríl 1946 samþykkti meirihluti bæjarstjórnar Vestmannaeyja 150 þúsund króna framlag úr bæjarsjóði til byggingar gagnfræðaskóla í Vestmannaeyjum.
Undanfari Gagnfræðaskólans var unglingaskóli, sem hafði verið starfræktur þar að nafninu til í nokkur ár, en með fastara skipulagi frá hausti 1927-1930.

Unglingaskólinn í Vestmannaeyjum 1928-1929, nemendur og kennarar.



Unglingaskólinn 1928-1929.
Skýring við mynd til hliðar:
Efsta röð frá vinstri:
Kjartan Jónsson, Brynjólfur Hallgrímsson, Hallgrímur Jónasson kennari, Þorsteinn Þ. Víglundsson skólastjóri, Haraldur Bjarnason kennari frá Svalbarði, Hannes G. Tómasson, Höfn, Ágúst Matthíasson Finnbogasonar.
Önnur röð frá vinstri:
Árni Guðmundsson frá Háeyri, Sigurður Símonarson Egilssonar í Miðey, Egill Símonarson Egilssonar í Miðey, Ríkharður Sigmundsson, Árni Ragnar Magnússon, síðar á Lágafelli, Daníel Loftsson.
Þriðja röð frá vinstri: Hrefna Geirsdóttir, Sigríður Halla Friðriksdóttir Svipmundssonar, Löndum, Ásta G. Haraldsdóttir, síðar í Garðshorni, Andrea Bjarnadóttir kennari, Sigrún Jónsdóttir, Margrét Ágústsdóttir, Sigríður Auðunsdóttir, Hlaðbæ.
Fjórða röð frá vinstri:
Guðmundur E. Jónsson, Guðrún Jónsdóttir, Sólveig Ólafsdóttir Auðunssonar, Þinghól, Ólöf Sigvaldadóttir, Ólafur Siggeirsson, Helgi Scheving.

Unglingaskólinn í Vestmannaeyjum 1929-1930, nemendur og kennarar.






































II. hluti (framhald)