Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. september 2009 kl. 15:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. september 2009 kl. 15:53 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Gagnfræðaskólinn.

Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum var stofnaður 19. maí 1930 samkvæmt lögum um gagnfræðaskóla í kaupstöðum. Hinn 24. apríl 1946 samþykkti meirihluti bæjarstjórnar Vestmannaeyja 150 þúsund króna framlag úr bæjarsjóði til byggingar gagnfræðaskóla í Vestmannaeyjum. Undanfari Gagnfræðaskólans var unglingaskóli, sem hafði verið starfræktur þar að nafninu til í nokkur ár, en með fastara skipulagi frá hausti 1927.

Unglingaskólinn í Vestmannaeyjum 1928-1929, nemendur og kennarar.
Unglingaskólinn í Vestmannaeyjum 1929-1930, nemendur og kennarar.
Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum 1938-1939, nemendur og kennarar.
Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum 1945, nemendur og kennarar.
Gagnfræðaskólinn í Vestmannaeyjum 1947, nemendur og kennarar.