Gústaf Sigurlásson (Reynistað)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gústaf Sigurlásson frá Reynistað, sjómaður fæddist þar 11. september 1941,
Foreldrar hans voru Sigurlás Þorleifsson sjómaður, verkamaður, f. 13. ágúst 1893, d. 26. nóvember 1980, og kona hans Þuríður Vilhelmína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 31. október 1907, d. 27. júlí 1992.

Barn Þuríðar og Ólafs Jónssonar:
1. Margrét Sigurlaug Ólafsdóttir, f. 31. júlí 1926 í Djúpadal í Hvolhreppi, d. 13. apríl 2015.

Börn Þuríðar og Sigurláss:
2. Eggert Sigurlásson, f. 20. febrúar 1929 á Rafnseyri, (Kirkjuvegi 12), d. 29. ágúst 1978.
3. Þorleifur Sigurlásson, f. 16. mars 1930 á Rafnseyri, d. 31. júli 2021.
4. Anna Sigurlásdóttir, f. 18. janúar 1933 á Hálsi v. Brekastíg, d. 2. janúar 2010.
5. Kristín Sigurlásdóttir, f. 28. apríl 1935 á Reynistað, d. 27. október 2020.
6. Ásta Sigurlásdóttir, f. 5. febrúar 1937 á Reynistað, d. 29. mars 2015.
7. Ólöf Sigurlásdóttir, f. 11. janúar 1939 á Reynistað.
8. Jóna Sigurlásdóttir, f. 11. júlí 1940 á Reynistað, d. 10. febrúar 2018.
9. Gústaf Sigurlásson, f. 19. september 1941 á Reynistað.
10. Helgi Sigurlásson, f. 8. janúar 1944 á Reynistað.
11. Andvana drengur, tvíburabróðir Helga, f. 8. janúar 1944.
12. Reynir Sigurlásson, f. 6. janúar 1946 á Reynistað, d. 1. mars 1979.
13. Erna Sigurlásdóttir, f. 23. september 1947 á Reynistað, d. 19. júní 1989.
14. Margrét Sigurlásdóttir, f. 1. janúar 1949 á Reynistað.
15. Geir Sigurlásson, f. 1. apríl 1950 á Reynistað.
16. Linda Sigurlásdóttir, f. 5. mars 1955 á Reynistað.

Gústaf var með foreldrum sínum í æsku.
Hann varð sjómaður.
Þau Jóhanna giftu sig 1973, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu á Sandi við Strandveg 63, keyptu íbúð við Heiðarveg 11 og síðar bjuggu þau við Skólaveg 13.
Jóhanna lést 2011.

I. Kona Gústafs, (30. desember 1973), var Jóhanna Elfa Víglundsdóttir frá Akureyri, húsfreyja fiskiðnaðarkona , f. 17. júlí 1943 á Hólum í Fljótum í Skagafirði, d. 18. mars 2011.
Börn þeirra:
1. Ásta Gústafsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 23. september 1973.
2. Sigurlás Gústafsson lestunarstjóri, f. 26. júlí 1980.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.