Gísli Engilbertsson (eldri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. júní 2006 kl. 14:43 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. júní 2006 kl. 14:43 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Gísli Engilbertsson fæddist 15. ágúst 1834 og lést 8. ágúst 1919.

Árið 1869 fluttist Gísli til Eyja með konu sína Ragnhildi Þórarinsdóttur. Þau settust að í Sjólyst í Eyjum. Þau eignuðust fimm börn, Þórarinn Gíslason (f. 1880) Engilbert Gíslason (f.1877), Elínborgu Gísladóttur (f. 1883), Guðfinnu Gísladóttur (f. 1870) og Katrínu Gísladóttur (f. 1875).

Eftir að Gísli fluttist til Vestmannaeyja gerðist hann verslunarþjónn við Tangaverslun eða Júlíushaab eins og hún hét þá.

Síðustu æviárin dvöldust Gísli og Ragnhildur hjá syni sínum Þórarni að Lundi í Vestmannaeyjum.