Gísli Bryngeirsson (Búastöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2013 kl. 20:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2013 kl. 20:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Gísli Bryngeirsson''' úrsmiður frá Búastöðum eystri fæddist 13. maí 1928.<br> Foreldrar hans voru Bryngeir Torfason formaður ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Gísli Bryngeirsson úrsmiður frá Búastöðum eystri fæddist 13. maí 1928.
Foreldrar hans voru Bryngeir Torfason formaður á Búastöðum, f. 26. september 1895, d. 9. maí 1939, og kona hans Lovísa Gísladóttir húsfreyja á Búastöðum, f. 18. júní 1895, d. 30. mars 1979.
Gísli lærði úrsmíði hjá Ingólfi Guðmundssyni úrsmið. Hann hefur starfað í Eyjum og Borgarnesi.
Kona Gísla, (desember 1955), er Gréta Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 29. júlí 1934.
Börn Gísla og Grétu:
1. Lovísa Gísladóttir, f. 22. nóvember 1952.
2. Steinunn Ingibjörg Gísladóttir, f. 16. febrúar 1954.
3. Konráð Gíslason, f. 20. ágúst 1960.
4. Hrafnhildur Gísladóttir, f. 22. ágúst 1962. Hún dó 6 mánaða gömul.
Þau Gréta dvelja nú (2013) í Hraunbúðum.

Gísla er getið í bjargveiðimannatali Árna Árnasonar, en án sérstakrar umsagnar.


Heimildir


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit