Forsíða

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. desember 2006 kl. 02:46 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. desember 2006 kl. 02:46 eftir Frosti (spjall | framlög) (setti inn þakkar texta og óska mönnum gleðilegs nýs árs.)
Fara í flakk Fara í leit

Verið velkomin á Heimaslóð, menningarsöguvef um Vestmannaeyjar. Þessi vefur er fyrir þá sem vilja fræðast um Vestmannaeyjar og allt það sem þeim við kemur. Skoðaðu þig um og njóttu dvalarinnar, því nú ertu á Heimaslóð.

Sérstakar þakkir eru færðar öllum þeim sem hafa veitt okkur liðstyrk á árinu ýmist með því að taka beinan þátt í uppbyggingunni eða með óbeinum hætti. Óskum ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þökkum fyrir samskiptin á árinu 2006.

Meðan öldur á Eiðinu brotna
og unir fugl við klettaskor.
Mun ég leita í Eyjarnar eins og fyrr
í æsku minnar spor.
Þar sem lundinn er ljúfastur fugla
þar sem lifði Siggi bonn
og Binni hann sótti í sjávardjúp
sextíu þúsund tonn.
Meðan lífsþorstinn leitar á hjörtun
meðan leiftrar augans glóð,
þó á höfðanum þjóti ein þrettán stig
ég þrái heimaslóð.
Ási í Bæ

Rúmt ár er liðið frá því Heimaslóð var formlega opnuð, hún var opnuð þann 12. nóvember 2005. Í augnablikinu eru 15.480 greinar á Heimaslóð.