„Fjórði áratugurinn“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
(Daníel matreiddi)
Lína 1: Lína 1:
Á árunum 1930-1940 varð allveruleg breyting á bátaflota Vestmannaeyinga. Keyptir voru til Vestmannaeyja 48 bátar á þessum árum, en hurfu þaðan af skrá 61 bátur, og fækkaði þeim því úr 97, eins og þeir voru í ársbyrjun 1930, í 84 árið 1940  
Á árunum 1930-1940 varð allveruleg breyting á bátaflota Vestmannaeyinga. Keyptir voru til Vestmannaeyja 48 bátar á þessum árum en hurfu þaðan af skrá 61 bátur. Fækkaði þeim því úr 97, eins og þeir voru í ársbyrjun 1930, í 84 árið 1940  

Heildarstærð bátaflotans hélst þó nokkuð í stað þar sem tonnatala hans var árið 1940 samtals 1.806 á móti 1.905 tonnum árið 1930. Meðalstærð báta hafði hækkað í 21,6 tonn í lok áratugarins.

Fjórði áratugurinn er sennilega daufasta og athafnaminnsta tímabilið í sögu vélbátaflotans í Vestmannaeyjum fram að þeim tíma. Ástæðan fyrir því er vafalaust verðfallið sem varð á saltfiskinum 1930. Eftir það úthald stóðu svo að segja allir útgerðarmenn í Eyjum eignarlausir, og sumir meira en það, og margir þeirra voru svo skuldum hlaðnir að þeir gerðu sér vart vonir um að þeim entist aldur til að greiða þær upp. Útlitið var því allt annað en bjart fyrstu ár þessa áratugar og því eðlilegt að það drægi úr áhuga manna til endurnýjunnar og stækkunnar bátaflotans. En úr öllu þessu átti eftir að rætast og útgerðin að rétta úr kútnum og það fyrr en varði, eins og síðar kemur fram..

Útgáfa síðunnar 13. júní 2005 kl. 08:48

Dýpkunarskip og úrbætur í hafnarmálum

Höfnin 1940

En þrátt fyrir erfiðleika atvinnuveganna á þessum árum réðust bæjaryfirvöld í tvær mikilvægar framkvæmdir á vegum hafnarinar sem áttu eftir að koma vel að notum. Fyrri kaupin voru þau að keypt var dýpkunarskip 1935. Dýpkunarskipið tók til starfa strax eftir heimkomuna við að dýpka höfnina, í fyrstu innsiglinguna, þannig að allir bátar Eyjaflotans gátu farið áhættulaust út og inn úr höfninni hvenær sem var, síðan var höfnin dýpkuð svo að bátarnir flutu mun betur.

Önnur framkvæmdin var gerð Básaskersbryggjunnar sem lokið var við árið 1937. Leysti hún hinn mikla vanda sem skapast hafði við löndun aflans úr þeim mikla fjölda báta sem gerður var út frá Eyjum.

Upphaf togveiða

Sumarið 1938 fengu eigendur að m/b Von, sem var 24,78 tonna bátur með 50 hestafla vél, styrk frá Fiskimálasjóði til þess að setja togveiðiútbúnað í bátinn. Var ætlunin að hann gerði tilraun til humarveiða með þessum útbúnaði, þetta misheppnaðist þó aðeins því að ýmislegt fleira en humar kom með, en menn sáu þó að þarna var komið mjög nothæft veiðarfæri sem skilaði þó betri árangri en dragnótin.

Þýðingarmikil

M/b Von

Togveiðin varð strax mjög þýðingarmikil fyrir Eyjarnar. Og þegar landhelgin var færð út í áföngum varð veiðin ávallt erfiðari, því þá var veiðin mjög þrengd innan fiskveiðimarkanna við hverja útfærslu. Þetta kom harðara niður á bátunum en stóru togurunum sem gátu vegna stærðar sínar og meira vélarafls fiskað fjær landi en vélbátar. En útgerðarmennirnir héldu þó þessum veiðum áfram sem leiddi þá óhjákvæmilega til endurtekinna landhelgisbrota. Alþingi var mjög erfitt að veita bátunum einhverjar undanþágur það var ekki fyrr en með breytingum árið 1968 álögunum um bann gegn botnvörpuveiðum innan fiskveiðimarkanna, og síðar fiskveiðilagasamþykktinni, sem aðstaða bátanna batnaði mjög, þar sem þeim var nú heimiluð veiði allt inn að þremur sjómílum frá straumfjöruborði við suðurströndina, og allt upp að Vestmannaeyjum.

Afli Vestmannaeyjabátanna varð þennan áratug samtals 293.084 tonn og var hann enn eins og afli undanfarinna ára nær eingöngu virkaðir í salt og fluttur út ýmist sem fullverkaður fiskur eða sem hálfverkaður saltfiskur.