Fjóla Jensdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Fjóla Jensdóttir húsfreyja fæddist 15. apríl 1932 á Dyrhólum við Hásteinsveg 15B og lést 31. mars 1986.
Foreldrar hennar voru Jens Sigurður Ólafsson bifreiðastjóri, f. 9. maí 1909 á Hofsósi í Skagafirði, d. 23. febrúar 1992, og kona hans Kristný Jónína Valdadóttir húsfreyja, f. 10. október 1909 í Mið-Skála u. Eyjafjöllum, d. 10. ágúst 1993.

Börn Kristnýjar Jónínu og Jens:
1. Ólafur Jensson, f. 26. ágúst 1929 á Búrfelli, d. 28. janúar 1930.
2. Lilja Sigríður Jensdóttir, f. 9. nóvember 1930 á Dyrhólum, d. 10. júlí 2022. Maður hennar var Guðlaugur Þórarinn Helgason, látinn.
3. Fjóla Jensdóttir, f. 15. apríl 1932 á Dyrhólum, d. 31. mars 1986. Maður hennar Bogi Sigurðsson.
4. Guðmunda Guðrún Jensdóttir, f. 13. september 1936 í Drangey við Kirkjuvegi 84. Fyrrum maður hennar Þorbjörn Ásgeirsson.
5. Sigríður Mínerva Jensdóttir, f. 3. nóvember 1943 á Einidrangi. Maður hennar Kristinn Skæringur Baldvinsson.
Fósturdóttir hjónanna, dóttir Guðrúnar Jensdóttur er
6. Guðný Linda Antonsdóttir, f. 14. júlí 1953.

Fjóla var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Bogi giftu sig 1953, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Einidrangi við Brekastíg 29 og við Boðaslóð 25.
Fjóla lést 1986.
Bogi bjó síðast við Kleifahraun. Hann lést 2023.

Maður Fjólu, (11. apríl 1953), var Bogi Sigurðsson frá Stakkagerði við Kirkjuveg 40, verksmiðjustjóri, f. 9. febrúar 1932, d. 19. janúar 2023.
Börn þeirra:
1. Sigurður Grétar Bogason, f. 11. maí 1953. Kona hans Halldóra Birna Eggertsdóttir Ólafssonar.
2. Jens Ólafur Bogason, f. 18. september 1955. Kona hans Reidun Irene Bolstad.
3. Valur Bogason, f. 8. október 1965. Kona hans Þórdís Jóelsdóttir þórs Andersen.
4. Bryndís Bogadóttir, f. 15. júní 1967. Maður hennar Pétur Andersen.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.