„Fiska- og náttúrugripasafnið“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 15: Lína 15:




----
{{Tenglar|
'''Tenglar'''
* [http://www.xtreme.is/safnahus/?p%3D200%26s%3D733%26i%3D733 Heimasíða Fiska- og náttúrugripasafnsins]
<small>
}}
* [http://www.xtreme.is/safnahus/?p=200&s=733&i=733 Heimasíða Fiska- og náttúrugripasafnsins]
</small>


{{Heimildir|
{{Heimildir|

Útgáfa síðunnar 30. júlí 2007 kl. 09:52

Hús Náttúrugripasafns Vestmannaeyja við Heiðarveg.

Safnið var stofnað árið 1964 og var Friðrik Jesson fenginn til þess að sjá um það. Safninu er skipt upp í þrjá sali: fugla-, fiska- og steinasafn. Friðrik hefur séð um að stoppa upp flest alla fugla og fiska sem eru til staðar á safninu.

Núverandi forstöðumaður safnsins er Kristján Egilsson og er safnið opið alla daga frá klukkan 11-17 á sumrin en frá klukkan 15-17 á sunnudögum á veturna.

Fuglasafn

Þarna má finna flesta þá fugla sem verpa á Íslandi uppstoppaða, auk allmargra flækingsfugla. Einnig eru þarna egg nær allra íslenskra varpfugla. Þó að þetta sé kallaður fuglasalur er nokkuð af uppstoppuðum fiskum og krabbdýrum í honum, svo sem sjaldséðum djúpsjávarfiskum.

Fiskasafn

Auglýsing frá árinu 1967.

Í þessum sal eru 12 ker sem geyma allar helstu tegundir nytjafiska sem veiðast hér við land, auk krabba, krossfiska, sæfífla og skeldýra. Í kerjunum er 6°C heitur sjór, sem dælt er úr borholu skammt frá safninu og er sá sjór því tandurhreinn.

Steinasafn

Þar er hægt að finna alls konar tegundir skrautsteina sem fundist hafa hér á landi. Flestir þessir steinar eru gjöf hjónanna Unnar Pálsdóttur og Sveins Guðmundssonar, Arnarstapa í Vestmannaeyjum, til Vestmannaeyjabæjar og var Náttúrugripasafninu falin varsla þeirra.



Tenglar


Heimildir

  • Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja. Fiska- og náttúrugripasafn Vestmannaeyja [Bæklingur]. Vestmannaeyjar.