Finnbogi Friðfinnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. desember 2022 kl. 11:14 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. desember 2022 kl. 11:14 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Finnbogi ásamt syni sínum Friðfinni í Eyjabúð.

Finnbogi Friðfinnsson fæddist 3. apríl 1927 og lést 21. desember 2003. Hann var kvæntur Kristjönu Þorfinnsdóttur. Hann var verslunarmaður í Eyjabúð. Hann bjó að Höfðavegi 4, húsinu Bogahlíð sem hlaut nafn eftir honum.

Frekari umfjöllun

Finnbogi Friðfinnsson frá Oddgeirshólum, kaupmaður fæddist 3. apríl 1927 og lést 21. desember 2003.
Foreldrar hans voru Friðfinnur Finnsson kafari og síðar kaupamaður í Eyjabúð, f. 22. desember 1901, d. 6. september 1989, og kona hans Ásta Sigurbjörg Sigurðardóttir húsmóðir á Oddgeirshólum, f. 3. nóvember 1906, d. 27. júlí 1990.

Börn Ástu og Friðfinns:
1. Finnbogi Friðfinnsson, f. 3. apríl 1927, d. 21. desember 2003.
2. Jóhann Friðfinnsson, f. 3. nóvember 1928, d. 13. september 2001.

Finnbogi var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lauk námi í Samvinnuskólanum 1947.
Finnbogi vann ýmis skrifstofu- og verslunarstörf, eignaðist verslunina Eyjabúð 1965 og rak hana í 33 ár.
Hann var virkur félagi í Akóges og Oddfellowstúkunni Herjólfi og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum. Þar að auki starfaði hann í Landakirkju í fjölda ára, m.a. var hann hringjari og félagi í kirkjukórnum. Þá var hann heiðursfélagi nr. 1 í Arsenalklúbbnum á Íslandi.
Þau Kristjana giftu sig 1948, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Oddgeirshólum, á Hásteinsvegi 58, Þingeyri við Skólaveg 37, síðast á Höfðavegi 4.
Finnbogi lést 2003.
Kristjana býr á Kleifahrauni 1d.

I. Kona Finnboga, (21. ágúst 1948), er Kristjana Þorfinnsdóttir húsfreyja, f. 10. febrúar 1930 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Gunnar Hafsteinn Finnbogason, f. 14. október 1947, d. 24. maí 1964.
2. Friðfinnur Finnbogason, f. 3. júní 1950. Kona hans Inga Jónsdóttir Runólfssonar.
3. Ásta Finnbogadóttir, f. 31. mars 1953. Maður hennar Ingólfur Grétarsson Skaftasonar.
4. Sigríður Kristín Finnbogadóttir, f. 16. desember 1955. Maður hennar Ingibergur Einarsson Erlendssonar.
5. Auður Finnbogadóttir, f. 19. mars 1960. Maður hennar Oddur M. Guðmundsson, látinn.

Myndir


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.