Fólk

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. nóvember 2005 kl. 13:56 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. nóvember 2005 kl. 13:56 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Í gegnum aldirnar hafa margir Eyjamenn getið sér góðan orðstír bæði í Vestmannaeyjum sem og á meginlandinu og jafnvel víða erlendis. Ógjörningur er að telja upp alla slíka Eyjamenn þar sem þeir skipta tugum þúsunda frá Landnámsöld, en hægt er með nokkuð góðu móti að stikla á ýmsum þekktum einstaklingum og tíunda þá Eyjamenn sem menn eru almennt sammála um að hafi markað spor fyrir menningu og þjóðlíf eyjanna.