Emil Sigurðsson (vélstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. janúar 2022 kl. 11:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. janúar 2022 kl. 11:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Karl ''Emil'' Sigurðsson''' frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði, sjómaður, vélstjóri fæddist þar 8. janúar 1924 og lést 18. nóvember 2010 á Elli- og á Dvalarheimilinu Grund í Reykjavík.<br> Foreldrar hans voru Sigurður Karlsson frá Garðsá í Fáskrúðsfirði, bóndi, útvegsbóndi, síðar í Fagurhól, f. 29. mars 1904, d. 12. ágúst 1972, og kona hans Kristín Sigurðardóttir (Fagurhól)|Kristín Si...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Karl Emil Sigurðsson frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði, sjómaður, vélstjóri fæddist þar 8. janúar 1924 og lést 18. nóvember 2010 á Elli- og á Dvalarheimilinu Grund í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Sigurður Karlsson frá Garðsá í Fáskrúðsfirði, bóndi, útvegsbóndi, síðar í Fagurhól, f. 29. mars 1904, d. 12. ágúst 1972, og kona hans Kristín Sigurðardóttir húsfreyja, síðar í Fagurhól, f. 6. október 1906, d. 27. maí 1981.

Emil var með foreldrum sínum í æsku.
Hann öðlaðist vélstjórnarréttindi í Neskaupstað.
Emil reri ungur með föður sínum, reri síðan frá heimahögum og suður með sjó.
Hann flutti til Eyja um 1950, var vélstjóri á ýmsum bátum, en lengst á Sigurfara VE 38.
Í Gosinu 1973 fluttu þau Helga til Grindavíkur. Emil hóf störf hjá Fiskimjöl og lýsi og vann þar til 1991, en þá flutti hann til Reykjavíkur og vann hjá Olíufélaginu Esso til 2002.
Emil flutti í þjónustuíbúð aldraðra á Vesturgötu 7 árið 2004, dvaldi síðustu mánuði sína á Elli- og Dvalarheimilinu Grund í Reykjavík.
Hann lést 2010.
Þau Lilja giftu sig 1953, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Faxastíg 43.
Lilja lést 1959.
Þau Helga giftu sig 1962, eignuðust ekki börn, en hún átti áður eitt barn. Þau bjuggu á Faxastíg 43, fluttu til Grindavíkur við Gos 1973.
Helga lést 1980.

I. Kona Emils, (23. maí 1953), var Lilja Finnbogadóttir frá Vallartúni, húsfreyja, forstöðukona, f. 15. febrúar 1920, d. 1. maí 1959.
Börn þeirra:
1. Gunnhildur Emilsdóttir, f. 1. nóvember 1952. Maður hennar Jakob Fenger, látinn.
2. Ásdís Lilja Emilsdóttir, f. 5. ágúst 1956. Maður hennar Kristján Ingi Einarsson.

II. Síðari kona Emils, (2. júní 1962), var Helga Þorkelsdóttir frá Sandprýði, húsfreyja, f. 11. nóvember 1913, d. 22. september 1980.
Þau voru barnlaus, en Helga átti barn áður:
3. Pétur Ragnar Antonsson, f. 26. ágúst 1934. Kona hans Sigrún Jónsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 25. nóvember 2010. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.