Elliði Vignisson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júlí 2019 kl. 15:55 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júlí 2019 kl. 15:55 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Elliði Vignisson bæjarstjóri

Elliði Vignisson er fæddur 28. apríl 1969. Eiginkona hans er Bertha Johansen kennari í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum og eiga þau tvö börn, Nökkva Dan og Bjarteyju Bríeti.

Elliði er sálfræðingur að mennt og hefur m.a starfað sem kennari við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum. Elliði var oddviti Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2006, 2010 og 2014. Hann var kjörinn bæjarstjóri á bæjarstjórnarfundi í Vestmannaeyjum 13. júní 2006 og var það til ársins 2018. Á því ári tók hann við sem bæjarstjóri í sveitarfélaginu Ölfus og gegnir hann þeirri stöðu í dag.