Einidrangur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. júlí 2006 kl. 15:25 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. júlí 2006 kl. 15:25 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Einnig er til hús sem heitir eftir skerinu. Hér er hægt að sjá grein um húsið Einidrangur (hús). Þar að auki er fyrirtæki sem kallar sig eftir drangnum, Einidrangur ehf.



Einidrangur er vestasta skerið í Vestmannaeyjaklasanum og stendur eitt og sér, langt frá Heimaey. Það er í útsuður frá Þrídröngum og er það milli Þrídranga og Geirfuglaskers. Það er 32 metrar á hæð og ekki er talið að drangurinn hafi verið klifinn hingað til, enda er það talið ómögulegt. Í lögun og stærð er Einidrangur líkastur Geirfuglaskeri. Í Einidrangi er ekkert fuglavarp enda er mjög lítill gróður í eynni, ef þá nokkur. Í kringum skerið, sérstaklega norðan við það, eru mörg sker, stór og lítil.

Einidrangur er stundum nefndur Einisdrangur eða jafnvel Einarsdrangur. Þó er Einidrangur réttasta mynd nafnsins.


Heimildir

  • Þorkell Jóhannesson. 1938. Örnefni í Vestmannaeyjum. Reykjavík: Hið íslenzka þjóðvinafélag.