Einar Sigurðsson (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2015 kl. 13:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2015 kl. 13:11 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Sigurðsson bóndi og sjómaður á Vilborgarstöðum fæddist 1769 á Vatnsskarðshólum í Mýrdal og lést 18. mars 1852.
Faðir hans var Sigurður bóndi á Vatnsskarðshólum, f. 1721, Magnússon, kóngssmiðs á Vilborgarstöðum, Sigurðssonar, en móðir Einars var síðari kona Sigurðar, Hallfríður húsfreyja, f. 1732, d. 3. maí 1820, Einarsdóttir bónda, smiðs, hreppstjóra og bátsformanns á Skíðbakka í A-Landeyjum, f. 1698, Sveinssonar bónda á Lágafelli þar, f. 1660, Sigurðssonar og konu Sveins, Sigríðar húsfreyju, f. 1666, á lífi 1729, Bjarnadóttur.
Móðir Hallfríðar og kona Einars á Skíðbakka var Elín.

Bróðir Einars var
Magnús Sigurðsson bóndi í V-Skaft., en síðan í dvöl á Vilborgarstöðum og bróðurbörn Einars voru
Jón Magnússon bóndi á Vilborgarstöðum og
Guðlaug Magnúsdóttir vinnukona

Einar var kvæntur vinnumaður á Vilborgarstöðum 1801 hjá Guðmundi Jónssyni bónda, hreppstjóra og sjávarbónda, f. 1757, d. 4. apríl 1836, og konu hans Þorlaugar Eiríksdóttur húsfreyju, f. 1750, d. 27. október 1803, og þar var Vigdís kona Einars 19 ára vinnukona.
Hann var orðinn bóndi á Vilborgarstöðum 1816. Þar voru hjá þeim börnin Guðmundur f. 1804 og Sigurður, f. 1806. Við manntal 1835 voru þau bændur þar með börnin Sigurð, Kristínu og Árna hjá sér. 1850 var hann þar 89 ára meðhjálpari.

I. Kona Einars var Vigdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1781 á Vilborgarstöðum, d. 8. maí 1854. Þau Einar og Vigdís eignuðust 17 börn, en 11 dóu nýfædd eða í frumbernsku og tvö fæddust andvana.
Börn Einars og Vigdísar voru:
1. Hallfríður Einarsdóttir, f. 17. janúar 1802, d. 25. janúar 1802 úr ginklofa.
2. Jón Einarsson, f. í apríl 1803, d. 21. apríl 1803 úr ginklofa.
3. Guðmundur Einarsson, f. 1804, d. 2. september 1822 úr landfarsótt.
4. Sigurður Einarsson klénsmiður, (þ.e. málmsmiður), sjávarbóndi, f. 10. júní 1806.
5. Ísleifur Einarsson, f. 2. júlí 1807, d. 8. júlí 1807 úr ginklofa.
6. Þorlaug Einarsdóttir, f. 24. febrúar 1809, d. 28. febrúar 1809 úr ginklofa.
7. Jón Einarsson, f. 14. ágúst 1810, d. 26. ágúst 1810 úr „þrringslum í querkum“, líklega krampi, ginklofi.
8. Þorgerður Einarsdóttir, f. 2. febrúar 1812, d. 9. febrúar 1812 úr „Barnaveikindum“.
9. Sveinn Einarsson, f. 10. apríl 1814. Mun hafa dáið ungur. Skýrslur skortir. Er ekki á mt 1816.
10. Magnús Einarsson, f. 18. júlí 1815. Mun hafa dáið ungur. Skýrslur skortir. Er ekki á mt 1816.
11. Jón Einarsson, f. 29. júní 1816, skírður „skemmri skýrn“. Mun hafa dáið nýfæddur. Skýrslur skortir. Finnst ekki 1816.
12. Kristín Einarsdóttir húsfreyja í Nýjabæ, f. 5. nóvember 1817, d. 6. október 1899.
13. Guðleif Einarsdóttir, f. 25. desember 1819, d. 25. nóvember 1819 úr „Barnaveiki“, 7 daga gömul. Hér er misræmi í dagsetningum í prestþj.bók.
14. Andvana fætt sveinbarn, f. 25. maí 1821.
15. Andvana fætt sveinbarn, f. 25. maí 1821.
16. Guðmundur, f. 12. janúar 1823. Hann finnst ekki síðan. Mun hafa dáið ungur.
17. Árni Einarsson bóndi, hreppstjóri og alþingismaður, f. 12. júní 1824, d. 19. febrúar 1899.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.