Dalir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júlí 2012 kl. 08:46 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júlí 2012 kl. 08:46 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Dalabúið árið 1961.
Guðjón Jónsson við heyskap
Fjósið og hlöður.
Kúabúið.
Um 1960.

Húsið Dalir stendur utan byggðar. Manntal 1892 greinir frá 2 bæjum. Kúabúið var reist á árunum 1942-1946. Um miðja 20. öldina var kúabúskapur mikill í Dölum. Um 50 nautgripir voru þar og þótti stórt á vestmanneyskan mælikvarða.

Árið 1942 afréð bæjarstjórn Vestmanneyja að láta bæinn stofna kúabú til mjólkurframleiðslu. Fengin var til þess ábúð á Dalajörðunum tveimur og brátt hafin þar bygging fjóss og hlöðu. Þar var byggt 60 bása fjós og stórar þurrheyshlöður. Hlaðan var 638 rúmmetrar, safnþrær um 300 rúmmetrar og einnig var byggt áburðar- og vélahús. Einnig var þar byggð votheyshlaða, 113 rúmmetrar. Árið 1944 var mæld hjá því nýrækt 8,5 ha. Áður hafði bæjarfélagið ræktað 4,7 ha. sáðsléttur, og látið rífa upp hundruð rúmmetra af grjóti úr því landi. Fyrsti bústjórinn var ráðinn Ársæll Grímsson, sem síðustu árin hafði haft Dalajarðirnar til ábúðar. Hann stjórnaði búrekstri bæjarins fyrstu tvö árin. Í byrjun maímánaðar 1946 tók Guðjón Jónsson við bústjórninni.

Að öllu jöfnu voru 50 mjólkandi kýr og um 10-12 geldneyti á búinu. Mjólk var flutt daglega til sjúkrahús bæjarins, elliheimili og barnaheimili. Það sem afgangs var þörfum þessara stofnana var selt í verslun er bærinn lét reka. Eftir að Mjólkursamsalan hóf verslun með mjólkurvörur í Eyjum árið 1954 fékk bærinn að selja sína mjólk þar. Árið 1962 seldi kaupstaðurinn Dalabúið úr eigu sinni.

Ábúendur

Myndir


Heimildir