Dalfjall

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. febrúar 2021 kl. 22:48 eftir PeturSteingrims (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. febrúar 2021 kl. 22:48 eftir PeturSteingrims (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Hluti Dalfjalls. Það sést í Ufsaberg, Eysteinsvík, Hrauney og Grasleysu.

Dalfjall er um 150 metra hátt fjall sem stendur norður og vestur af Herjólfsdal og dregur fjallið nafn sitt af því. Það gengur frá austri til vesturs og myndar nokkurs konar skál um norðurhlið dalsins. Vestasti hluti fjallsins kemur saman í hnjúk að nafni Blátindur. Austast í fjallinu er lítið gil aðgreinir Dalfjall frá að sunnan. Efsti partur Dalfjalls að norðan kallast Eggjar en þar fyrir neðan er Saltaberg sunnan megin og Ufsaberg norðan megin.

Í vestri blasa við Smáeyjar, nyrst og vestast Grasleysa, nær Hrauney, loks Hani og Hæna. Drangurinn syðst heitir Jötunn. Sjómannafélagið í Vestmannaeyjum dregur nafn sitt af þessum virðulega drangi.

Fíllinn