„Dagný Þorsteinsdóttir (Laufási)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|200px|''Dagný Þorsteinsdóttir. '''Dagný Þorsteinsdóttir''' frá Laufási, húsfreyja, kennari fæddist 3. apríl 1926 í Laufási...)
 
m (Verndaði „Dagný Þorsteinsdóttir (Laufási)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 11. janúar 2017 kl. 20:20

Dagný Þorsteinsdóttir.

Dagný Þorsteinsdóttir frá Laufási, húsfreyja, kennari fæddist 3. apríl 1926 í Laufási og lést 4. ágúst 2016.
Faðir Dagnýjar var Þorsteinn skipstjóri og útgerðarmaður í Laufási, f. 14. október 1880, d. 25. mars 1965, Jónsson bónda, safnvarðar og útgerðarmanns á Hrauni, f. 26. mars 1851, d. 3. ágúst 1924, Einarssonar bónda á Seljalandi u. Eyjafjöllum, f. 12. janúar 1808, d. 27. febrúar 1883, Ísleifssonar, og konu Einars, Sigríðar húsfreyju, f. 20. ágúst 1815, d. 16. ágúst 1880, Auðunssonar.
Móðir Þorsteins í Laufási og fyrri kona Jóns á Hrauni var Þórunn húsfreyja, f. 19. apríl 1850, d. 15. mars 1903, Þorsteinsdóttir bónda í Steinmóðarbæ u. Eyjafjöllum, f. 14. ágúst 1813, d. 15. desember 1858, Ólafssonar og konu Þorsteins, Kristínar húsfreyju, f. 19. júlí 1823, d. 23. nóvember 1890, Jónsdóttur.

Móðir Dagnýjar og kona Þorsteins í Laufási var Elínborg húsfreyja í Laufási, f. 1. nóvember 1883, d. 5. mars 1974, Gísladóttir verslunarstjóra í Juliushaab, (Tanganum), f. 14. ágúst 1834 í Syðstu-Mörk undir Eyjafjöllum, d. 8. ágúst 1919, Engilbertssonar og konu Engilberts Ólafssonar, Guðfinnu húsfreyju, f. 15. ágúst 1807, d. 11. nóvember 1894, Gísladóttur.
Móðir Elínborgar og kona Gísla Engilbertssonar var Ragnhildur húsfreyja á Tanganum, f. 19. október 1844 í Fljótshlíð, d. 12. maí 1925, Þórarinsdóttir bónda á Hlíðarenda, f. 1807, Þórarinssonar, og konu hans Katrínar Þórðardóttur húsfreyju, f. 8. nóvember 1806, d. 17. desember 1899.

Börn Elínborgar og Þorsteins í Laufási:
1. Þórhildur Þorsteinsdóttir húsfreyja á Breiðabólstað í Fljótshlíð, f. 20. janúar 1903, d. 21. desember 2004.
2. Unnur Þorsteinsdóttir húsfreyja í Bræðratungu, f. 19. október 1904, d. 6. mars 1947.
3. Gísli Þorsteinsson frystihússeigandi í Eyjum, f. 23. júní 1906, d. 10. júlí 1987.
4. Ásta Þorsteinsdóttir, f. 20. apríl 1908, d. 17. ágúst 1934.
5. Jón Þorsteinsson, f. 15. maí 1910, d. 11. júní 1923.
6. Fjóla Þorsteinsdóttir húsfreyja, skifstofumaður í Reykjavík, f. 30. apríl 1912, d. 31. júlí 2012.
7. Ebba Þorsteinsdóttir, f. 15. desember 1916, d. 18. ágúst 1927.
8. Anna Þorsteinsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 13. maí 1919, d. 18. desember 2010.
9. Bera Þorsteinsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 31. maí 1921.
10. Jón Þorsteinsson verkstjóri, f. 12. nóvember 1923, d. 16. júní 2007.
11. Dagný Þorsteinsdóttir húsfreyja, handavinnukennari í Eyjum, f. 3. apríl 1926, d. 4. ágúst 2016.
12. Ebba Þorsteinsdóttir húsfreyja, sjúkrahússstarfsmaður í Hafnarfirði, f. 19. maí 1927, d. 14. október 1987.
Fóstursonur hjónanna, sonur Unnar dóttur þeirra og Runólfs í Bræðratungu, er
13. Ástþór Runólfsson húsasmíðameistari, f. 16. október 1936.

Dagný var með foreldrum sínum í æsku, gekk í Gagnfræðaskólann og lauk gagnfræðaprófi 1942. Hún vann afgreiðslustörf, gekk í Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1947-1948, var við nám í Kennaraskóla Íslands og tók handavinnukennarapróf 1955.
Dagný kenndi við Gagnfræðaskólann í Eyjum 1955-1958, var stundakennari þar í 2 mánuði 1959 og stundakennari við barnaskólann október-desember 1960.
Þau Bogi giftu sig 1956 og eignuðust tvö börn, bjuggu fyrstu 17 árin í Laufási, en eftir Gos bjuggu þau í húsi sínu að Höfðavegi 17.
Dagný settist í Kennaraháskóla Íslands 1973-1974, kenndi við Gagnfræðaskólann frá 1964-1982 og var forfallakennari við Barnaskólann frá 1982-1986.

I. Maður Dagnýjar, (29. desember 1956), var Bogi Þorleifur Finnbogason frá Eskifirði, skipstjóri, síðan fiskimatsmaður, f. 4. júlí 1920, d. 14. júlí 1995. Börn þeirra:
1. Guðný Bogadóttir hjúkrunarfræðingur, f. 9. nóvember 1958 á Sjúkrahúsinu.
2. Erlendur Bogason kafari, rekur köfunarþjónustuna Strýtuna á Akureyri, f. 13. mars 1963.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 13. ágúst 2016. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.