Conrad Lintrup

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. febrúar 2016 kl. 10:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. febrúar 2016 kl. 10:53 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Conrad Lintrup verslunarstjóri í Garðinum fæddist 7. desember 1807 og lést 21. maí 1890.
Faðir hans voru Sebastian Wilhelm Lintrup og stjúpmóðir hans var Ane Kristine Schaarup Lintrup.

Hann fluttist með Björgu konu sinni frá Hafnarfirði að Garðinum 1851 og gegndi starfinu til ársins 1859, er þau hjón fluttust til Kaupmannahafnar, en C.H. Bohn tók þá við og sat í Garðinum síðla árs 1859. Hann var skráður faktor með Lintrup 1858. Einnig bjó þar 1859 Jens Christian Thorvald Abel kaupmaður, sem hafði setið í Godthaab árið áður, en selt verslunina 1858.
Conrad Lintrup var síðar bókhaldari í Danmörku.

Kona Konráðs Lintrup var Björg Hallsdóttir (f. 1814).
Sjá einnig Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum, Viðureign Björns á Fitjarmýri og Lintrups verzlunarstjóra.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.