Byggðasafn Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júlí 2012 kl. 10:59 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júlí 2012 kl. 10:59 eftir Frosti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Merki Byggðasafns Vestmannaeyja

Byggðasafn Vestmannaeyja var stofnað árið 1932. Frumkvöðull að stofnun safnsins og driffjöður í áratugi var Þorsteinn Þ. Víglundsson, en hann sá hættuna á því að menningarverðmæti færu forgörðum ef ekki yrði hafist handa við söfnun þeirra. Fyrstu árin var munum komið fyrir í geymslu á heimili hans, en síðar fékk safnið inni á háalofti nýbyggingar Gagnfræðaskólans, og árið 1964 var safnið opnað almenningi á 3. hæð Sparisjóðsins. Árið 1978 var safnið opnað á ný eftir gosið og þá í Safnahúsinu.

Byggðasafn á eldstöðvum

Þann 27. janúar 1973 lagði sex manna hópur undir stjórn Þorsteins Þ. Víglundssonar af stað til Eyja frá Þorlákshöfn með Gullbergi VE. Markmiðið var að bjarga menningarverðmætum Eyjanna frá nýhöfnu gosinu og koma mununum úr Byggðasafninu í örugga geymslu á fastalandinu. Í hópnum voru m.a. synir Þorsteins og fleiri skyldmenni. Unnið var sleitulaust að því að búa muni Byggðasafnsins undir flutninginn dagana 28. og 29. janúar. Mununum var komið fyrir í fjórum gámum og voru þeir fluttir með Dettifossi til Reykjavíkur.

Orðsending frá Byggðasafninu í Bliki 1967.

Í Reykjavík tók á móti þeim Þór Magnússon, þjóðminjavörður, sem ásamt sínu fólki kom mununum fyrir í geymslum Þjóðminjasafnsins. Alls tók þessi ferð tæpa fjóra sólarhringa.


http://www.youtube.com/playlist?list=PL338E5D2CA6972FD4

EmbedVideo is missing a required parameter.

Fyrsti gripurinn

EmbedVideo is missing a required parameter.

Annar gripurinn

b3N3JtZB5gE 3P8MEMLfWjc


Heimildir