Brynjólfur Hallgrímsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Brynjólfur Hallgrímsson frá Felli í Mýrdal, verkamaður, skrifstofumaður fæddist þar 27. maí 1913 og lést 18. október 1991.
Foreldrar hennar voru Hallgrímur Brynjólfsson bóndi, síðar verkamaður í Eyjum, f. 1. september 1870 á Litlu-Heiði í Mýrdal, d. 24. júlí 1937 í Eyjum, og kona hans Sigurveig Sveinsdóttir frá Miðeyjarhólmi í A.-Landeyjum, húsfreyja, f. 29. ágúst 1868, d. 19. apríl 1955.

Börn Sigurveigar og Hallgríms:
1. Sveinn Hallgrímsson, f. 17. ágúst 1896, d. 1. apríl 1897.
2. Sveinn Hallgrímsson verkstjóri, f. 24. september 1897, d. 16. nóvember 1982. Fyrri kona Guðríður Grímsdóttir. Síðari kona Ragnheiður Svanlaugsdóttir.
3. Vilhjálmur Kristinn Hallgrímsson rafvirki í Reykjavík, f. 10. apríl 1899, d. 28. janúar 1997. Kona hans Hulda Ragnheiður Jónsdóttir.
4. Sigurleif Hallgrímsdóttir sjúkraþjálfari, f. 1. júlí 1900, d. 7. nóvember 1995.
5. Jónas Hallgrímsson blikksmiður í Reykjavík, f. 2. apríl 1902, d. 4. janúar 1988. Kona hans Sigríður Sóley Sveinsdóttir.
6. Brynjólfur Hallgrímsson, f. 1. ágúst 1903, d. 19. janúar 1915.
7. Ísleif Elísabet Hallgrímsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 4. apríl 1905, d. 30. mars 2004. Maður hennar Sigurður Friðriksson.
8. Þorgerður Hallgrímsdóttir húsfreyja, f. 19. júní 1906, d. 11. febrúar 1982. Maður hennar, skildu, var Oddsteinn Friðriksson.
9. Ísbjörg Hallgrímsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 19. október 1908, d. 16. nóvember 1995.. Maður hennar Þorsteinn Halldórsson.
10. Jón Hallgrímsson verkamaður í Vík í Mýrdal, f. 21. apríl 1910, d. 2. júní 2005. Kona hans Steinvör Sigríður Jónsdóttir.
11. Erlendur Hallgrímsson loftskeytamaður, f. 18. nóvember 1911, fórst með togaranum Sviða 2. desember 1941. Kona hans Sigríður Sveinsdóttir.
12. Brynjólfur Þorgrímur Hallgrímsson verkamaður, skrifstofumaður í Kópavogi, f. 18. maí 1913, d. 18. október 1991. Kona hans Þórhalla Friðriksdóttir.
Börn Hallgríms og Guðrúnar Einarsdóttur:
14. Jóhann Magnús Hallgrímsson trésmiður á Hellu, f. 23. september 1911, d. 1. janúar 1982. Fyrri kona hans Guðríður Jónasdóttir. Síðari kona hans Petrína Jakobsson.
15. Óskar Maríus Hallgrímsson rafvirki, rafmagnseftirlitsmaður í Mosfellsbæ, f. 18. mars 1922, d. 4. október 2009. Kona hans Margrét Ragna Jóhannsdóttir.

Brynjólfur var með foreldrum sínum á Felli til 1926, vinnumaður þar 1926-1930.
Hann fór til Eyja 1926, bjó við Hásteinsveg 5, fór þaðan til Rvk 1935, var þar verkamaður, síðan skrifstofumaður.
Hann bjó í Garðahreppi, Rvk og Kópavogi.
Þau Þórhalla giftu sig 1966. Þau bjuggu í Kópavogi.

I. Kona Brynjólfs, (20. ágúst 1966), var Þórhalla Friðriksdóttir (Halla) húsfreyja, f. 15. apríl 1915 að Rauðhálsi í Mýrdal, d. 7. nóvember 1999.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.