Brandur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júní 2005 kl. 15:11 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júní 2005 kl. 15:11 eftir Smari (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Brandur er lítil eyja (0.1 km²) sem liggur rétt sunnan við Álsey. Hún er gíglaga nema suðurhlið gígsins hefur orðið sterkri suðuröldunni að bráð og rofnað burt. Ytri hluti gígsins norðan og austan megin er girtur hömrum á meðan innri hliðin sunnan megin er meira aflíðandi. Greinilega má sjá 5m háan gígtappa við rætur suðurbrekkunnar. Veiðikofi Brandeyinga eru staðsettur ofarlega á eyjunni en graslendi þekur hana alla. Lundaveiði og eggjataka er stunduð í Brandi og sauðfé haft á beit.