Borg

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 14:15 eftir Simmi (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 14:15 eftir Simmi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Borg stóð við Heimagötu 3a og var reist sumarið 1904 til að hýsa Barnaskólann í Vestmannaeyjum. Yfirsmiður við byggingu hússins var Ágúst Árnason og aðrir smiðir sem komu að byggingu hússins voru Magnús Ísleifsson í London og Sigurður í Merkisteini. Einnig var þarna, þinghús Vestmannaeyja, réttarsalur og fangelsi, sem var viðbygging austast á húsinu.

Borg var timburhús á tveimur hæðum, með hlöðnum kjallara og kom sérstakt timburskip með viðinn og músteina. Var það mjög vel byggt í og var annað stærsta húsið á sínum tíma, aðeins Austurbúðin var stærri.


Húsið Borg stóð við Heimagötu 3a og var barnaskóli og þinghús á árunum 1904-17. Síðar var rekið bíó og pósthús í húsinu.

Einnig stóð hús á Stakkagerðistúni sem bar nafnið en var flutt árið 1894.