Blik 1980/Leikfélag Vestmannaeyja 70 ára

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2007 kl. 15:36 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2007 kl. 15:36 eftir Dadi (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Úr „Gullna hliðinu“, Stefán Árnason leikur „Höfðingjann neðra“, þá áttræður að aldri. Til hægri er Unnur Guðjónsdóttir.

Í árgöngum Bliks 1962, 1965 0g 1967 birti Árni Árnason, símritari sögu leikstarfs í Vestmannaeyjum. Saga þessa menningarstarfs hefst árið 1852. (sjá VII. kafla Efnisskrárinnar í þessu hefti Bliks.)
Árið 1910 stofnuðu Eyjamenn fast leikfélag, Leikfélag Vestmannaeyja. Þetta félag er þess vegna 70 ára á þessu ári.
Til þess að minna Eyjamenn á 70 ára afmæli þessa merkilega menningarstarfs þá birtir Blik að þessu sinni myndir frá starfsemi Leikfélagsins. Því miður áttum við ekki þess kost að birta myndir frá síðustu starfsárum þess.

Úr leikritinu „Hart í bak“ flutt í Eyjum haustið 1975 á 65 ára afmæli Leikfélags Vestmannaeyja. Lengst til vinstri er frú Unnur Guðjónsdóttir sem starfað hefur að leiklist í Eyjum í 30 ár. Hér er hún leikstjóri í fyrsta sinn á starfsferli sínum. Það starf hefur henni jafnan tekizt vel.
Úr leikritinu „Kinnarhvolssystur“, sem Leikfélag Vestmannaeyja flutti haustið 1950. Þá var Leikfélag Vestmannaeyja 40 ára.
Frá vinstri: Gunnar Sigurmundsson, prentari, frú Unnur Guðjónsdóttir, Stefán Árnason, lögregluþjónn, frú Ragnheiður Sigurðardóttir og Kristján Georgsson, kaupmanns Gíslasonar.