Blik 1969/Færeyiski háfurinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. ágúst 2012 kl. 20:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. ágúst 2012 kl. 20:12 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1969


Færeyski háfurinn


Færeyskur háfur.




Háfur hefur verið notaður til lundaveiða í Vestmannaeyjum síðan N. N. Bryde kaupmaður festi kaup á fyrsta háfnum í Færeyjum árið 1875 handa Árna hreppstjóra og bónda í Stakkagerði. Mjög bráðlega eftir það notuðu Vestmannaeyingar háfinn einvörðungu við lundaveiðarnar.

Enginn veit með vissu, hversu lengi Færeyingar hafa notað háf til fuglaveiða. Ef til vill er hann þar jafngamall búsetu Færeyja. Það vita menn með vissu, að hann var algengt veiðitæki fyrir þrem öldum þar í eyjunum.

Venjulegt færeyskt háfsskaft er 3,76 metra langt (6 álnir) úr furu. Háfsspíkurnar eru 1,25—1,88 metra langar og mjókka fram. Stundum var lásinn gjörður úr horni, stundum úr járni.