„Blik 1960/Vestmannaeyjahöfn, innri hluti 1923, mynd“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 9: Lína 9:
<br>
<br>
<br>
<br>
<center>[[Mynd: 1960, bls. 198 A.jpg|ctr|500px]]</center>
<center>[[Mynd: 1960 b 198 A.jpg|ctr|500px]]</center>





Núverandi breyting frá og með 31. ágúst 2010 kl. 18:09

Efnisyfirlit 1960



Vestmannaeyjahöfn
innri hluti 1923



ctr


Til vinstri á myndinni sést Tangabryggja fram af vörugeymsluhúsi Tangaverzlunarinnar. Hún hvarf inn í Básaskersbryggjuna, þegar hún var byggð. Til hægri á myndinni er trébryggja, sem byggð var 1921 fram af Skildingafjöru.

Sú bryggja var rifin á árunum 1928—1930. Austan við hana sjást Básaskerin, hið efra og hið fremra. Þau eru meginundirstaða Básaskersbryggjunnar, sem byggð var á árunum 1927—1930, 1932 og 1936—1937, og loks var því verki öllu lokið 1942. Hún er eitt mesta mannvirki sinnar tegundar hér á landi. Lengst til hægri liggja uppskipunarbátar skipaafgreiðslnanna, en fram til ársins 1926 voru allar vörur fluttar í land í Eyjum úr skipum á svo nefndum uppskipunarbátum, en það sumar lagðist fyrsta hafskipið að bryggju í Eyjum, Edinborgarbryggjunni. Öll uppskipun úr hafskipum fór fram við bryggju, eftir að bygging Básaskersbryggjunnar var svo langt komin, að hafskip flutu að henni, og dýpi hafnarinnar leyfði það að öðru leyti.